Inngangsdagur
Brottfarardagur
 

Viðreisn

KAFFITERÍA/AMERÍSKUR BAR

Þökk sé áralangri reynslu og nálægð við viðskiptavini okkar höfum við öðlast  verðmæta þekkingu til að búa til matreiðslustaði sem ykkur falla í geð.

Við vitum að morgunverður er mikilvægur og þess vegna opnar kaffiterían hurðir sínar daglega frá kl. 07:30 til 11:00. Þar er boðið upp á fjölbreytt hlaðborð við allra hæfi.

Að morgunverði loknum býður kaffiterían upp á fjölbreytt úrval samloka og rétta eins og súpu og rétt dagsins.

Kaffiterían/amerískur bar opnar einnig hurðir sínar seinni part dags og þá er boðið upp á frábæra kokteila og uppáhaldsdrykki á meðan stiginn er dans og hlustað á

lifandi tónlist, söng og píanó.


Sundlaugabarinn

Á sumrin, meðan þú nýtur sundlaugarinnar er fátt eins freskandi og að koma við á sundlaugabarnum sem einnig er staðsettur í garðinum. Kunnugleiki og umhyggja heilla strax og hinir ýmsu smáréttir eru ógleymanlegir. Með uppáhaldsdrykkinn þinn og lostæti á disknum er ánægjulegt að hvíla sig um stund á sólinni.

Fyrir sérstaka kvöldverði eða tilefni bjóðum við einnig viðeigandi lausnir.


VEITINGASTAÐUR

Á hótelinu er einnig að finna veitingastaðinn La Braseria, með útisvæði með útsýn yfir sjóinn og opið eldhús. Fyrir áhugamenn um góðan mat býður La Brasería upp á fjölbreyttan matseðil með sérréttum matreiðslumannssins sem og vinsælum innlendum og erlendum réttum.

Fersk- og saltvatns fiskabúr okkar tryggja ekki aðeins gæði fisksins og skelfisksins heldur getur þú valið sjálf/ur og notið draumamáltíðar þinnar. Stór og fjölbreyttur vínkjallari fullnægir kröfum þeirra kröfuhörðustu.


Bein lína á "La Braseria": 952 374 118

guia-michelin rentalcars guia-gps
Configurar cookies »